Allt sem þú þarft til húsbyggingar.
Úrvalið okkar fer vel með húsið þitt án þess að fara með þig.
Við hönnum og framleiðum húsgögn eftir máli. Baðherbergi, fataherbergi, eldhús… Öll möguleg rými!

formsatriði á hlið viðskiptavinarins eru í lágmarki
mjög samkeppnishæf verð
við bjóðum uppá heilgmáma eða minni sendingar
Við munum útvega þér allt sem þú þarft til að byggja hús. Þarftu grunnsteypublokkir, þakklæðningu, byggingarefni eða eitthvað fyrir útlit hússins? Allt þetta finnur þú í úrvali okkar! Við vinnum eingöngu með traustum birgjum, sem er trygging fyrir hágæða og mjög hagstæðum verðum.


Þú hefur þegar byggt húsið þitt og ert að leita að vörum til að ljúka því? Ekkert mál! Í úrvali okkar finnur þú mikið úrval af frágangsefnum frá virtum framleiðendum. Við tryggjum faglega ráðgjöf, alhliða stuðning við útflutning og sjáum um öll tollformlegheit. Hafðu samband við okkur, við munum með ánægju segja þér hvernig þetta virkar og hvers vegna það er þess virði að vinna með okkur.
Frá hönnun til framleiðslu og skipulagningar á flutningi. Við sköpum falleg heimili! Þú átt þitt eigið heimili og við vitum hvernig á að útbúa það. Í hönnun okkar leggjum við mesta áherslu á stíl og notagildi. Eftir að þú samþykkir hönnunina framleiðum við öll húsgögnin fyrir þig. Þegar þau eru tilbúin, pökkum við þeim í gám og sendum út um allan heim.
Hönnun er ókeypis með pöntun!

Í yfir 8 ár höfum við séð um alhliða sölu á vörum fyrir byggingar og endurbætur en einnig um úflutning á byggingarvörum. Við afgreiðum vörurnar okkar á marga staði í Evrópu og um allan heim. Dæmi? Hér koma þau: Noregur, Ísland, Sviss, Svíþjóð, Írland, Kanada, Panama, Kanaríeyjar, Þýskaland, Spánn og jafnvel… Nýja Sjáland!
Í viðskiptum kunnum við að meta fagmennsku, áreiðanleika og persónulega nálgun við hvern viðskiptavin. Við bjóðum upp á mjög fjölbreyttar vörur, allt frá byggingarefnum eins og stál fyrir burðarvirki eða timbur til húsbyggingar gegnum fullbúnar þakklæðningar, fjölbreytt klæðningakerfi fyrir útveggi og einangrun yfir í innréttingar. Meðal þess sem við bjóðum ávallt upp á eru skandinavískir gluggar, Velux þakgluggar, Rockwool steinull, þakskífur úr keramik og steinsteypu, stálklæðningar á þök, gifsplötur, OSB plötur, flísar, baðinnréttingar, húsgögn o.s.frv. Við kunnum að meta að þú hafir það þægilegt. Þess vegna ábyrgjumst við faglega tækniráðgjöf og alhliða stuðning við útflutning.
Þar sem við búum yfir fullkominni þekkingu á tollferlum sem gilda við útflutning getum við greiðlega gengið frá hverri pöntun þar sem afhenda á vörurnar okkar erlendis. Við búum yfir margra ára reynslu í því að skipuleggja útflutning til margra landa í Evrópu og um allan heim. Það skilar sér í fyrsta flokks þjónustu og hagstæðu verði.
00
ára reynsla
00
lönd þjónustuð
000
flutningar árlega
Skandpol Eksport er samnefnari yfir fagmenn sem þekkja innréttingar og byggingariðnaðinn út í ystu æsar. Þess vegna einfaldlega vitum við hvaða efni munu svara þörfum þínum. Þar sem við höfum margra ára reynslu getum við ábyrgst að við þekkjum tollferla tengda útflutningi í löndum eins og: Noregur, Sviss, Ísland og jafnvel… Nýja Sjáland eða Panama! Við höldum uppi reglulegum samskiptum við tollmiðlara, jafnt í Póllandi sem og um víða veröld. Þú getur alltaf treyst á hjálp frá okkur. Við sjáum um að veita stuðning ef það koma upp hvers konar efasemdir varðandi útflutning til tiltekins lands.
Við afgreiðum nokkur hundruð sendinga árlega til landa þar sem við höfum tekið eftir mikilli eftirspurn eftir byggingarvörum frá Póllandi. Við sjáum að staðaldri um útflutning á steinull og kemískum efnum til bygginga. Við sérhæfum okkur þó í skipulagningu á flóknum sendingum á heilum bílförmum sem innihalda efni til byggingar eða viðbygginga og alhliða innréttinga á húsi.
Við gerum okkur grein fyrir að slíkri fjárfestingu fylgir gríðarmikill kostnaður, vinna og álag af hálfu þess sem byggir. Þess vegna hjálpum við alltaf við að velja lausnir sem munu fullkomlega uppfylla væntingar viðskiptavinarins. Með hann í huga leggjum við okkur alla fram til að útflutningur á byggingarefnum eða innréttingum verði auðveldur og ánægjulegur.
Viltu kynna þér úrval okkar á gluggum úr PVC? Eða viltu kannski frekar skandinavíska glugga? Sendu okkur línu eða hringdu og við sjáum um restina.
Verið einnig velkomin að skoða flipann „Unnin verk” þar sem finna má myndir af vörunum sem við höfum sent, myndir úr lestun eða verk sem við höfum hjálpað við að gera að raunveruleika.
© All rights reserved | 2026 Skandpol Eksport